Við notum aðeins ferskustu fáanlegu hráefni hverju sinni og gerum gríðarlegar kröfur til allra okkar birgja. Matseðillinn okkar er í sífelldri mótun og endurskoðun enda trúum við því að það sé alltaf hægt að gera betur.
Helgarbrönsinn okkar er sá besti í bænum og inniheldur að sjálfsögðu Eggs Benedict og Mímósu en líka fjölmarga aðra ljúffenga rétti sem fullkomna helgarfríið með þínu besta fólki.
Okkur finnst fátt skemmtilegra en að skipuleggja árshátíðir eða stórafmæli enda hentar Bryggjan bæði stórum og smærri hópum einstaklega vel. Hægt er að halda veglega veislu fyrir 10 - 250 manns og hvort sem þú kýst sitjandi þriggja rétta máltíð eða standandi taco-veislu og margarítur, þá erum við til í tuskið.